Ég er Anita Ýrr

Ég kom í heiminn þann 21. maí 2004 klukkan 11:55. Við fæðingu var ég 3522gr eða 14 merkur og 51 cm.

Mamma mín heitir Rósa og Pabbi minn heitir Jón Fannar og svo á ég eina stóra systur sem að heitir Elíza Lív
og mér finnst hún algjört æði og vill helst gera allt eins og hún. Hún á líka heimasíðu hérna sem að þið getið skoðað!
Í apríl 2010 varð ég svo stóra systir. Þið getið skoðað síðuna hjá Sóley Von með því að smella hérna

Við eigum heima í Innri-Njarðvík þar sem við byggðum okkur hús. Spítalinn sem að ég fæddist á heitir
Queen Charlottes & Chelsea Hospital. Ég er keisaraynja og fæddist með keisaraskurði eftir 38 vikna meðgöngu.

Ég er alveg að verða 7 ára og er í 1. bekk Kettlingum í Akurskóla og finnst alveg æðislega gaman að læra og vera í skólanum.
Ég hef mjög ákveðnar skoðanir á hlutunum og vei þeim sem ætlar að segja mér fyrir verkum.
Ég trúi því staðfastlega að stelpur eigi bara að vera í pilsum og kjólum - ALLTAF!

 







Tvíburarnir
21. maí - 21. júní
Óþolinmótt eftir að hefja leikinn er líklegt að tvíburabarnið hafi sparkað duglega í móðurkviði. Tvíburabörn eru líkleg til að byrja snemma að tala og þau segja sína skoðun frá byrjun. Þau eru mjög forvitin í eðli sínu og þurfa því alltaf að hafa eitthvað fyrir stafni. Þau eiga mjög erfitt með að sitja kyrr og eiga mjög erfitt með að þegja. Athyglin beinist stöðugt að nýjum viðfangsefnum en áhuginn hverfur oft mjög fljótt. Tvíburarnir þurfa mikla örvun og hyggilegt er að leikföng þeirra séu margvísleg og vitsmunalega þroskandi, svo sem púsluspil og þrautir af ýmsu tagi. Því fyrr sem tvíburabarnið kemst í hóp annarra barna því betra því tvíburarnir elska félagslíf enda hafa þeir mikla samskiptahæfileika. Líf og fjör er tvíburum að skapi. Yfirleitt er tvíburinn bráðþroska vitsmunalega og því nauðsynlegt að sinna þessum þætti í uppeldinu með því að reyna að svara t.d. spurningum hans (þær eru reyndar oft ansi margar) og ræða við hann. Litlir tvíburar eru oft stríðnir og hrekkjóttir en það ber ekki að taka of alvarlega því yfirleitt er meiningin ekki slæm. Hann grípur oft til prakkarastrika til að hrista upp í umhverfinu því hann hefur ríka þörf fyrir tilbreytingu.